Markaðs- og menningarnefnd Fjallabyggðar

59. fundur 05. desember 2019 kl. 17:00 - 19:20 í Ráðhúsi Fjallabyggðar, Gránugötu 24, Siglufirði
Nefndarmenn
  • Ólafur Stefánsson formaður, D lista
  • Ida Marguerite Semey aðalmaður, I lista
  • Jón Kort Ólafsson aðalmaður, H lista
  • Sigríður Guðmundsdóttir aðalmaður, D lista
  • Guðrún Linda Rafnsdóttir varamaður, I lista
Starfsmenn
  • Linda Lea Bogadóttir markaðs- og menningarfulltrúi
  • Ríkey Sigurbjörnsdóttir deildarstjóri fræðslu- frístunda- og menningarmála
Fundargerð ritaði: Ríkey Sigurbjörnsdóttir deildarstjóri fræðslu-, frístunda- og menningarmála.
Ægir Bergsson boðaði forföll og í hans stað sat Guðrún Linda Rafnsdóttir fundinn.

Í upphafi fundar mættu nefndarmenn á sýningaropnun Aðalheiðar S. Eysteinsdóttur í Kompunni Alþýðuhúsinu.

1.Fyrirspurn frá trolla.is varðndi jólatrésdagskrá á Siglufirði

Málsnúmer 1912004Vakta málsnúmer

Eftirfarandi fyrirspurn hefur borist markaðs- og menningarnefnd frá Gunnari Smára Helgasyni f.h. lesanda trolla.is:

"Hæhæ, mig langar að vita hvort menningarnefndin gæti tekið það til umhugsunar fyrir næsta ár að hér sé kveikt á jólatrénu á Siglufirði á laugardegi en ekki sunnudegi eins og síðasliðin ár. Einnig væri hægt að hafa einhvern annan dag en sunnudag. Það er ekkert um að vera hér á sunnudögum til að trekkja fólk að jólatrénu og við erum alltaf á eftir Ólafsfirðingum sem gera mikið úr deginum með sölubásunum sínum sem mér finnst alveg vera frábært hjá þeim en við gætum búið til lengri fimmtudag t.d. eða haft þetta á laugardegi þegar búðir eru opnar."

Markaðs- og menningarnefnd þakkar fyrirspurnina og bendir á að undanfarin ár hefur verið misjafnt á hvaða degi kveikt er á jólatrénu á Siglufirði. Nefndin telur mikilvægt að kveikt sé á jólatrénu um helgi og í síðasta lagi kl. 16:00. Í ár var horft til þess að vera með athöfnina í framhaldi af hátíðarkirkjuskóla barnanna.

2.Markaðsstefna Fjallabyggðar

Málsnúmer 1811009Vakta málsnúmer

Málinu frestað til næsta fundar.

3.Söfnunar- og útlánareglur Listasafns Fjallabyggðar

Málsnúmer 1908062Vakta málsnúmer

Drög að söfnunar- og útlánareglum fyrir Listaverkasafn Fjallabyggðar lögð fram til kynningar. Markaðs- og menningarfulltrúa falið að halda áfram vinnu við gerð reglna í samræmi við umræðu fundarins og leggja fyrir næsta fund nefndarinnar.

4.Bæjarlistamaður 2020

Málsnúmer 1910072Vakta málsnúmer

Markaðs- og menningarnefnd fór yfir tilnefningar til bæjarlistamanns Fjallabyggðar 2020 en frestur til að skila inn tilnefningum rann út 24. október sl. Nefndin þakkar íbúum fyrir tilnefningar en nokkrar bárust. Útnefning fer fram í Menningarhúsinu Tjarnarborg 23. janúar 2020. Markaðs- og menningarnefnd útnefnir Elías Þorvaldsson bæjarlistamann Fjallabyggðar 2020.

5.Menningarstefna Fjallabyggðar

Málsnúmer 1407056Vakta málsnúmer

Gildandi menningarstefna Fjallabyggðar er útgefin árið 2009. Markaðs- og menningarnefnd leggur til að farið verði í endurgerð stefnunnar. Markaðs- og menningarfulltrúa falið að koma með hugmynd að næstu skrefum í vinnunni.

Fundi slitið - kl. 19:20.