The Herring House

The Herring House er yndislegt gistiheimili á Siglufirði sem er einstaklega vel staðsett; í stórum friðsælum garði á bak við kirkjuna, með útsýni yfir bæinn, fjörðinn og fjöllin í kring.  Stutt er í alla þjónustu svo sem verslun, kaffihús, veitingastaði og söfn – alla þá afþreyingu sem ferðafólk sækir í.

Fjöllin í kringum Siglufjörð eru engu lík. Þau bjóða upp á mikla möguleika til útiveru eins og gönguferðir á sumrin og skíðaiðkun á veturna, hvort sem er göngu-, svig- eða fjallaskíði sem oft er hægt að stunda fram í júní.

The Herring House býður upp á fjögur glæsileg vel búin herbergi með uppábúnum rúmum og tvö smáhýsi sem staðsett eru á lóðinni. Herbergin eru með sameiginlegum vel útbúnum eldhúskrók og rúmgóðu baðherbergi. Smáhýsin, sem eru tveggja manna, eru með verönd, sér baðherbergi og litlu, en fullbúnu eldhúsi.  Á lóðinni er einnig að finna útisturtu, baðhús og heitan pott inn á milli trjánna.

Heimasíða The Herring House