Bæjarráð Fjallabyggðar

532. fundur 27. nóvember 2017 kl. 12:00 - 13:15 í Ráðhúsi Fjallabyggðar, Gránugötu 24, Siglufirði
Nefndarmenn
  • Steinunn María Sveinsdóttir formaður, S lista
  • S. Guðrún Hauksdóttir varaformaður, D lista
Starfsmenn
  • Guðrún Sif Guðbrandsdóttir deildarstjóri stjórnsýslu- og fjármála
Fundargerð ritaði: Guðrún Sif Guðbrandsdóttir deildarstjóri stjórnsýslu og fjármála
Hilmar Þór Elefsen og Jón Valgeir Baldursson boðuðu forföll og varamenn boðuðu einnig forföll.

1.Erindum vísað til gerðar fjárhagsáætlunar 2018

Málsnúmer 1702002Vakta málsnúmer

Golfklúbbur Fjallabyggðar
Golfklúbburinn óskaði eftir endurnýjun á rekstrar- og framkvæmdarstyrk.
Bæjarráð samþykkir að endurnýja rekstrarsamning við golfklúbbinn að upphæð 2.800.000 og að gerður verði framkvæmdarstyrkur til fjögurra ára að upphæð 4.000.000 kr. ár hvert.

2.Fjárhagsáætlun 2018

Málsnúmer 1711029Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga að fjárhagsáætlun 2018 og 2019-2021.
Deildarstjóri stjórnsýslu og fjármála kynnti tillöguna fyrir bæjarráði.
Bæjarráð samþykkir að vísa tillögu að fjárhagsáætlun 2018 og 2019-2021 til fyrri umræðu í bæjarstjórn.

3.Gjaldskrár 2018

Málsnúmer 1710094Vakta málsnúmer

Teknar til umfjöllunar gjaldskrár og álagning 2018
Bæjarráð samþykkir að leggja eftirfarandi tillögur fyrir bæjarstjórn:
Útsvarsprósenta verði óbreytt 14,48%
Fasteignaskattsprósenta verði óbreytt, (A 0,49%, B 1,32% og C 1,65%)
Lóðarleiguprósenta verði óbreytt (A 1,90% og C 3,50%)
Sorphirðugjöld hækki í 42.000 kr. úr 41.000 kr.
Holræsa-/fráveitugjaldaprósenta verði óbreytt 0,36%.
Vatnsskattsprósenta fasteignagjalda verði óbreytt 0,35%
Að gjaldskrár og þjónustugjöld 1. janúar 2018 taki mið af breytingum á vísitölu frá 1. janúar 2016, að undanskildum skólamáltíðum í Grunnskóla Fjallabyggðar sem haldast óbreyttar, gjaldskrá hafnarsjóðs og gjaldskrá Tjarnarborgar.

Bæjarráð samþykkir að leggja á gatnagerðargjald samkvæmt b lið 4. greinar, í samþykkt um gatnagerðargjald og sölu byggingarréttar í Fjallabyggð, þegar úthlutað er lóðum á deiliskipulögðum svæðum. Það þýðir að greitt verður gatnagerðargjald í samræmi við fermetrafjölda þeirrar byggingar sem byggingarleyfi tekur til en ekki í samræmi við fermetrafjölda þeirra bygginga sem heimilt er að reisa á viðkomandi lóð samkvæmt gildandi deiliskipulagi.

4.Siglufjarðarflugvöllur

Málsnúmer 1709072Vakta málsnúmer

Bæjarráð samþykkir að senda inn umsókn til Samgöngustofu þess efnis að Siglufjarðarflugvöllur verði skráður sem lendingarstaður. Framtakið mun styðja við framfarir í ferðaþjónustu í sveitarfélaginu en jafnframt er flugbrautin mikilvægt öryggismannvirki fyrir íbúa Fjallabyggðar. Með breyttri skráningu yrði hlutverk sveitarfélagsins fyrst og fremst upplýsingjagjöf um ástand lendingarbratuar til flugmanna sem lenda þar á eigin ábyrgð.

5.Málefni Hverfisgötu 17 Siglufirði

Málsnúmer 1506013Vakta málsnúmer

Tekin fyrir niðurstaða verðkönnunar vegna niðurrifs á húsi við Hverfisgötu 17 Siglufirði.

Eftirfarandi tilboð bárust:

Bás ehf. 2.320.000 kr. m. vsk.
Sölvi Sölvason ehf. 2.150.000 kr. m. vsk.

Bæjarráð samþykkir að taka lægsta tilboði í framkvæmdina.

Verkinu skal vera lokið eigi síðar en 30.desember nk.

6.Ábending vegna strætóskýlis á Siglufirði

Málsnúmer 1710109Vakta málsnúmer

Ábending barst til skipulags- og umhverfisnefndar frá Þórarni Hannessyni um að strætóskýli við Snorragötu á Siglufirði rúmi ekki þann fjölda sem nemenda sem bíður eftir skólabílnum.
Nefndin vísaði erindinu til bæjarráðs.
Bæjarráð óskar eftir umsögn deildarstjóra tæknideildar.

7.Auglýsing umsóknar um byggðakvóta fiskveiðiársins 2017/2018

Málsnúmer 1709045Vakta málsnúmer

Samkvæmt niðurstöðum Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins varðandi úthlutun byggðakvóta til sveitarfélagsins fyrir fiskveiðiárið 2017/2018 koma 300 þorskígildistonn til ráðstöfunar í Ólafsfirði.

Engum byggðakvóta er úthlutað til ráðstöfunar á Siglufirði. Bæjarráð felur staðgengli bæjarstjóra að óska eftir rökstuðningi frá ráðuneytinu.

Frestur til að óska eftir því við ráðuneytið að sett séu sérstök skilyrði varðandi úthlutun byggðakvóta sveitarfélagsins er til 20. desember 2017.

8.Verkefnið Sundlaugar okkar ALLRA !

Málsnúmer 1711073Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar erindi Sjálfsbjargar landsambands hreyfihamlaðra til forstöðumanns Íþróttamiðstöðvanna vegna aðengisverkefnis á vegum félagsins þar sem gerðar voru notendaúttektir á sundlaugum á svæðum aðildafélaganna, m.t.t. aðgengis hreyfihamlaðra. Gerð var úttekt á sundlauginni í Ólafsfirði. Gerðar eru nokkrar athugasemdir við aðstöðuna í sundlauginni en jafnframt tekið fram að margt jákvætt sé að finna varðandi aðgengi í sundlauginni.

9.1Blárstrengur - umsókn um styrk

Málsnúmer 1611013Vakta málsnúmer

Lagt fram þakkarbréf frá Heilbrigðisvísindasviði Háskólans á Akureyri þar sem Fjallabyggð er þakkað fyrir veittan stuðning við ráðstefnuna Einn blár strengur sem fór fram í vor.

10.Stuðningur við Snorraverkefnið 2018

Málsnúmer 1711072Vakta málsnúmer

Tekin fyrir styrkumsókn frá Snorrasjóði þar sem óskað er eftir stuðningi við Snorraverkefnið 2018. Árið 2018 mun tuttugasti hópur ungmenna af íslenskum ættum á aldrinum 18-28 ára koma til Íslands frá Kanada og Bandaríkjunum til að kynnast rótum sínum. Markmið þess er að styrkja tengsl afkomenda Íslendinga í Norður-Ameríku við Ísland og hvetja unga Vestur-Íslendinga til að varðveita og rækta íslenskan menningar- og þjóðararf sinn.
Bæjarráð hafnar styrkbeiðninni.

11.Beiðni um fjárstuðning við forvarnarstarf SAMAN- hópsins á árinu 2017

Málsnúmer 1711061Vakta málsnúmer

Tekin fyrir beiðni um fjárstuðning við forvarnastarf Saman-hópsins á árinu 2018.
Bæjarráð samþykkir að veita styrk að upphæð 25.000 kr.

12.Styrkbeiðni vegna reksturs Aflsins

Málsnúmer 1711058Vakta málsnúmer

Tekin fyrir styrkbeiðni frá Aflinu, samtökum gegn kynferðis og heimilisofbeldi, vegna reksturs á árinu 2018.
Bæjarráð samþykkir að veita styrk að upphæð 25.000 kr.

13.Umsókn um tímabundið tækifærisleyfi til skemmtanahalds

Málsnúmer 1711076Vakta málsnúmer

Tekið fyrir erindi frá Sýslumanninum á Norðurlandi eystra, dags. 22.11.2017, þar sem óskað er eftir umsögn bæjarráðs vegna umsóknar Láru Stefánsdóttur, kt. 090357-5579, Mararbyggð 49, 625 Ólafsfirði sem sækir um sem ábyrgðarmaður fyrir Dagný Ásgeirsdóttur, kt. 091000-3420, Aðalgötu 8 621 Dalvík, um tímabundið tækifærisleyfi til skemmtanahalds, tilefnið er Ball, föstudaginn 1. desember nk. frá 22:00 til laugardagsins 2. desember nk. til 02:00 í Menntaskólanum á Tröllaskaga.

Bæjarráð samþykkir umsóknina fyrir sitt leyti.


14.Fundargerðir nefnda og stjórna Fjallabyggðar - 2017

Málsnúmer 1701004Vakta málsnúmer

Lagðar fram til kynningar fundargerðir frá 2. og 3. fundi stjórnar Hornbrekku, 46. og 47. fundi fræðslu- og frístundanefndar, 2. fundi öldungaráðs, 92. fundi hafnarstjórnar og 38. fundi markaðs- og menningarnefndar, 107. fundi félagsmálanefndar, 219. fundi skipulags- og umhverfisnefndar.

Fundi slitið - kl. 13:15.