Bæjarráð Fjallabyggðar

489. fundur 28. febrúar 2017 kl. 08:00 - 08:40 í Ráðhúsi Fjallabyggðar, Gránugötu 24, Siglufirði
Nefndarmenn
  • Steinunn María Sveinsdóttir formaður, S lista
  • S. Guðrún Hauksdóttir varaformaður, D lista
  • Sólrún Júlíusdóttir aðalmaður, B lista
Starfsmenn
  • Gunnar Ingi Birgisson bæjarstjóri
  • Ármann Viðar Sigurðsson embættismaður
Fundargerð ritaði: Ármann Viðar Sigurðsson deildarstjóri tæknideildar

1.Starfsmannamál í leikskólum Fjallabyggðar

Málsnúmer 1702063Vakta málsnúmer

Lagður fram útreikningur á kostnaði vegna nýs stöðugildis í 100% starf við Leikhóla.

Bæjarráð samþykkir að vísa kostnaði til viðauka við fjárhagsáætlun 2017.

2.Málefni Vegagerðarinnar í Fjallabyggð

Málsnúmer 1603021Vakta málsnúmer

Lögð fram samantekt eftir fund bæjarstjóra og deildarstjóra tæknideildar með fulltrúum Vegagerðarinnar þann 21.02.2017.

3.Til umsagnar 128. mál frá nefndasviði Alþingis

Málsnúmer 1702044Vakta málsnúmer

Lögð fram umsögn stjórnar Eyþings um frumvarp um farþegaflutninga.

Bæjarráð tekur undir umsögnina.

4.Starf deildarstjóra stjórnsýslu- og fjármáladeildar

Málsnúmer 1702041Vakta málsnúmer

Lagðar fram umsóknir umsækjenda um starf deildarstjóra stjórnsýslu- og fjármáladeildar. Alls bárust fimm umsóknir.
Eftirtaldir sóttu um starfið:
Björn Bergmann Þorvaldsson, ráðgjafi
Guðrún Sif Guðbrandsdóttir, viðskiptafræðingur
Helga Jónsdóttir, aðalbókari
Kristján Ragnar Ásgeirsson, fjármálastjóri
Tinna Helgadóttir, sölumaður
Fjórir umsækjendur uppfylltu umsóknarskilyrði.

Bæjarráð felur bæjarstjóra, varaformanni bæjarráðs og Sólrúnu Júlíusdóttur að taka viðtöl við umsækjendur, sem uppfylla umsóknarskilyrði.

5.Birding Iceland

Málsnúmer 1702077Vakta málsnúmer

Erindi frestað til næsta fundar.

6.Tjarnarborg, endurnýjun á eldhúsi

Málsnúmer 1702076Vakta málsnúmer

Deildarstjóri tæknideildar óskar eftir heimild til að gera verðkönnun innan sveitarfélagsins vegna endurnýjunar á eldhúsinu í Tjarnarborg.

Bæjarráð samþykkir ósk deildarstjóra tæknideildar en minnir á að framkvæmdin skuli vera innan fjárheimilda.

7.Trúnaðarmál - Skipulagsbreyting

Málsnúmer 1702020Vakta málsnúmer

Niðurstaða skráð í trúnaðarbók.

8.XXXI. landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga

Málsnúmer 1702064Vakta málsnúmer

Landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga verður haldið föstudaginn 24. mars nk.
Samkvæmt 7. gr. samþykkta Sambands íslenskra sveitarfélaga eru landsþingsfulltrúar sveitarfélaganna, formenn og framkvæmdastjórar landshlutasamtaka sveitarfélaga og framkvæmdastjórar sveitarfélaga, þ.e. sveitar- og bæjarstjórar, hér með boðaðir til XXXI. landsþings sambandsins.

Steinunn M. Sveinsdóttir og S. Guðrún Hauksdóttir sækja landsþingið ásamt bæjarstjóra.

9.Sveitarfélögin og ferðaþjónustan

Málsnúmer 1702075Vakta málsnúmer

Föstudaginn 3. mars nk. stendur Samband íslenskra sveitarfélaga fyrir málþingi undir yfirskriftinni "Sveitarfélögin og ferðaþjónustan". Markmið málþingsins er að sveitarstjórnarmenn komi saman til þess að ræða málefni ferðaþjónustu og þær áskoranir og tækifæri sem felast í fjölgun ferðamanna sem leggja leið sína hingað til lands. Málþingið hefur jafnframt verið kynnt fyrir fulltrúum ferðaþjónustunnar og öðrum sem láta sig málið varða.

Lagt fram til kynningar.

10.Nemendaspjaldskrá

Málsnúmer 1702074Vakta málsnúmer

Lagt fram yfirlit yfir börn sem fæddust árið 2011 og skráð voru til heimilis í sveitarfélaginu þann 1. desember 2016, en þau hefja skólagöngu næsta haust.

Bæjarráð vísar málinu til deildarstjóra fræðslu-, frístunda- og menningardeildar og skólastjóra.

11.Kynningarfundur um gerð húsnæðisáætlana

Málsnúmer 1702068Vakta málsnúmer

Íbúðalánasjóður og Samband íslenskra sveitarfélaga bíður til kynningarfundar um gerð húsnæðisáætlana í húsnæði Íbúðalánasjóðs, Borgartúni 21, þriðjudaginn 28. febrúar n.k. kl. 13-14.30.

Lagt fram til kynningar.

12.Endurbygging Bæjarbryggju, þekja og lagnir

Málsnúmer 1701075Vakta málsnúmer

Lagt fram bréf frá Hafnasambandi Íslands, þar sem eru taldar upp framkvæmdir sem eru fjármagnaðar af Hafnabótasjóði fyrir árið 2017. Þekja og lagnir á Bæjarbryggju eru þar á meðal og því er það verkefni að fullu fjármagnað með framlögum úr Hafnabótasjóði (75%) og bæjarsjóði (25%).

Bæjarráð fagnar ákvörðun Alþingis og innanríkisráðherra með fjármögnun á þessari nauðsynlegu framkvæmd.

13.Ísland ljóstengt - Upplýsingar vegna ljósleiðaravæðingar sveitarfélaga

Málsnúmer 1609042Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar.

Niðurstöðu styrkúthlutunar má sjá á heimasíðu Innanríkisráðuneytisins.
https://www.innanrikisraduneyti.is/frettir/nidurstada-styrkuthlutunar-vegna-verkefnisins-island-ljostengt-2017

14.Fundargerðir stjórnar Róta bs. - 2017

Málsnúmer 1701033Vakta málsnúmer

Lögð fram fundargerð aðalfundar Róta frá 25.01.2017 haldinn á Mælifelli á Sauðárkróki.

Fundi slitið - kl. 08:40.