Bæjarráð Fjallabyggðar

256. fundur 03. maí 2012 kl. 11:00 - 13:00 í Ráðhúsinu Gránugötu 24 Siglufirði
Nefndarmenn
  • Ólafur Helgi Marteinsson formaður
  • Bjarkey Gunnarsdóttir aðalmaður
  • Egill Rögnvaldsson aðalmaður
  • Sigurður V Ásbjarnarson bæjarstjóri
  • Ólafur Þór Ólafsson skrifstofu- og fjármálastjóri
Fundargerð ritaði: Ólafur Þór Ólafsson skrifstofu- og fjármálastjóri

1.Erindi um endurnýjun rekstrarsamnings Síldarminjasafnsins

Málsnúmer 1204084Vakta málsnúmer

Lagt fram bréf dags. í apríl, en þar er bæjarstjórnendum þakkað fyrir ómetanlegan stuðning við Síldarminjasafnið í þágu lands og þjóðar eins og það er orðað. Einnig er lögð fram til kynningar ársskýrsla stjórnar fyrir árið 2011 og rekstrar- og verkefnaáætlun fyrir árið 2012. Ársreikningur Síldarminjasafns Íslands ses. var einnig lagður fram til kynningar.

Á þessu ári rennur út gildandi samningur Fjallabyggðar við safnið og óska stjórnendur safnsins eftir endurnýjun á umræddum samningi.

Bæjarráð felur bæjarstjóra að undirbúa nýjan samning og verður samningurinn endanlega samþykktur við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2013.

2.Gjaldskrá fyrir Ægisgötu 15

Málsnúmer 1204074Vakta málsnúmer

Íþrótta- og tómstundafulltrúi leggur fram tillögu að gjaldskrá fyrir efri hæð að Ægisgötu 15 Ólafsfirði.

Fram kemur að leiguverð er 1.200 kr. á fermetra á mánuði og er inn í leiguverði afnot af sal, eldhúsi og salernum, en leigjendur taka að sér þrif og ræstingar.

Leiguverð á sal er 2.000 kr. p/klst. en langtímaleiga miðast við 5.000 kr. p/sólarhring.
Útleiga og umsjón er á hendi íþrótta- og tómstundafulltrúa.

Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að gjaldskráin verði samþykkt.

3.Minnisblað - Fundur bæjarstjóra, deildarstjóra tæknideildar og bæjarverkstjóra

Málsnúmer 1204085Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað bæjarstjóra um fyrirliggjandi uppsögn á starfi í þjónustumiðstöð bæjarfélagsins og breytingum þeim samfara.

Bæjarráð samþykkir þær tillögur sem fram koma í umræddu minnisblaði og felur deildarstjóra tæknideildar að koma þeim ábendingum til framkvæmda.

4.Skólaakstur veturinn 2012-2013

Málsnúmer 1204087Vakta málsnúmer

Fræðslu- og menningarfulltrúi lagði fram tillögu fræðslunefndar um að allir nemendur Grunnskóla Fjallabyggðar hefji skóla á sama tíma næsta vetur eða kl. 08:00.

Til þess að svo geti orðið, þarf að keyra nemendur frá Siglufirði á miðstigi kl.7:35 til Ólafsfjarðar, þ.e. á sama tíma og keyra þarf nemendur frá Ólafsfirði til Siglufjarðar.
Ekki hefur verið gert ráð fyrir þeim kostnaði í fjárhagsáætlun 2012.

Bæjarráð felur bæjarstjóra að leggja fram tillögu á næsta fundi bæjarráðs eftir frekari viðræður við skólastjórnendur, fulltrúa fræðslunefndar og eiganda Suðurleiða.

5.Beiðni um úthlutun stuðningskennslu til Leikskóla Fjallabyggðar

Málsnúmer 1204088Vakta málsnúmer

Fræðslu- og menningarfulltrúi lagði í bréfi sínu fram beiðni skólastjóra leikskóla um úthlutun á stuðningskennslu fyrir tvö börn, en um er að ræða nánast heilt stöðugildi.

Bæjarstjóri lagði fram tillögu að höfðu samráði við fræðslu og menningarfulltrúa um ákveðnar skipulagsbreytingar vegna framkominna óska um aukna þjónustu á þessu sviði.

Bæjarráð samþykkir að segja upp núverandi stöðu iðjuþjálfa við skólann sem er 30% frá og með næstu mánaðarmótum og auglýsa nýtt 100% starf sem felur í sér þjálfun nemenda, ráðgjöf til starfsmanna og samskipti við foreldra og aðra aðila auk þess að halda utan um sérkennslu í leikskólanum. Nýr starfsmaður taki til starfa eftir sumarleyfi.

Bæjarstjóra er falið að kanna, til næsta fundar, með áætlaðan kostnað og hvernig bæjarfélagið geti brugðist við umræddri breytingu þar sem ekki var gert ráð fyrir aukningu á starfshlutfalli á leikskólum bæjarfélagsins á árinu.

6.Átak í afþreyingar- og umhverfismálum í Siglufirði

Málsnúmer 1106092Vakta málsnúmer

Bæjarstjóri lagði fram undirritað samkomulag við Rauðku ehf. sem og tillögu að samþykktum fyrir Leyning ses.
Bæjarstjóri fór yfir tildrög málsins en þau eru;

Rauðka ehf. fyrirtæki starfandi í ferðamannaiðnaði vill auka fjölbreytni í þjónustu fyrir almenning og ferðamenn. Fjallabyggð hefur sýnt þessum framkvæmdum áhuga og samþykkti þann 28. febrúar 2012 að hefja skyldi viðræður milli Rauðku ehf. og félaga því tengdu um hugmyndir um fjárfestingar og uppbyggingu á Siglufirði og aðkomu Fjallabyggðar að því. Einnig var samþykkt að Valtýr Sigurðsson hrl. leiddi viðræðurnar sem oddamaður.

Í fram komnum gögnum er gerð grein fyrir hverju verkefni fyrir sig, kveðið á um tímaáætlanir, skyldur samningsaðila og tryggingar fyrir efndum, tengingar verkefnanna innbyrðis og meðferð ágreiningsefna og vanefndaúrræða.

Bæjarráð samþykkir samning og samþykktir eins og þær liggja fyrir fundinum og vísar þeim til bæjarstjórnar til endanlegrar afgreiðslu.

7.Verkefnisáætlun um skammtímavistun

Málsnúmer 1204070Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar verkefnisáætlun fyrir fötluð börn og ungmenni í Dalvíkurbyggð, sem mun þjóna öllu starfssvæði SSNV með áherslu á Dalvíkur- og Fjallabyggð.

8.Ársreikningar sveitarfélaga 2011 - rafræn skil til annarra opinberra aðila

Málsnúmer 1204104Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar.

9.Flokkun Eyjafjörður ehf. - aðalfundur 7. maí 2012

Málsnúmer 1204072Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar.
Forseti bæjarstjórnar, Ingvar Erlingsson, mun sitja fundinn f.h. Fjallabyggðar.

10.Rekstraryfirlit 31. mars 2012

Málsnúmer 1204105Vakta málsnúmer

Lagt fram rekstraryfirlit fyrir tímabilið janúar til mars 2012, annars vegar fyrir A- og B-hluta sveitarfélagsins svo og málaflokkayfirlit.

11.Til umsagnar - Tillaga til þingsályktunar um áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða

Málsnúmer 1204075Vakta málsnúmer

Atvinnuveganefnd Alþingis sendir til umsagnar tillögu til þingsályktunar um áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða, 727. mál.
Þess er óskað að undirrituð umsögn berist fyrir 8. maí nk.
Lagt fram til kynningar.

12.Ársreikningur Fjallabyggðar 2011

Málsnúmer 1203093Vakta málsnúmer

Ábendingar KPMG lagðar fram til kynningar, sem og viðbrögð stjórnsýslu við góðum ábendingum

13.Fundagerðir Heilbrigðisnefndar Norðurlands vestra 2012

Málsnúmer 1202010Vakta málsnúmer

Fundargerð Heilbrigðisnefndar Norðurlands vestra frá 24. apríl 2012 lögð fram til kynningar.

14.Fundagerðir stjórnar Eyþings 2012

Málsnúmer 1203003Vakta málsnúmer

Fundagerðir 228. og 229. fundar stjórnar Eyþings, ásamt fundargerð stjórnar Eyþings og þingmanna Norðausturkjördæmis frá 3. febrúar lagðar fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 13:00.