Bæjarráð Fjallabyggðar

721. fundur 25. nóvember 2021 kl. 08:00 - 09:30 í Ráðhúsi Fjallabyggðar, Gránugötu 24, Siglufirði
Nefndarmenn
  • Nanna Árnadóttir aðalmaður, I lista
  • Jón Valgeir Baldursson aðalmaður, H lista
  • S. Guðrún Hauksdóttir formaður, D lista
Starfsmenn
  • Guðrún Sif Guðbrandsdóttir deildarstjóri stjórnsýslu- og fjármála
  • Elías Pétursson bæjarstjóri
Fundargerð ritaði: Guðrún Sif Guðbrandsdóttir deildarstjóri stjórnsýslu- og fjármála

1.Útboð á ræstingu í Leikskóla Fjallabyggðar

Málsnúmer 2111047Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað deildarstjóra fræðslu-, frístunda og menningarmála dags. 22. október 2021, í minnisblaðinu er óskað eftir heimild til útboðs á ræstingum í Leikskóla Fjallabyggðar.
Samþykkt
Bæjarráð samþykkir ósk um heimild til útboðs og felur deildarstjóra fræðslu-, frístunda og menningarmála að auglýsa verkið.

2.Erindi frá Hestamannafélaginu Gnýfara

Málsnúmer 2111004Vakta málsnúmer

Lagt er fram minnisblað deildarstjóra stjórnsýslu og fjármála, deildarstjóra tæknideildar og deildarstjóra fræðslu-, frístunda- og menningarmála dags. 8. nóvember 2021. Í minnisblaðinu er farið yfir sjö aðskilin erindi hestamannafélagsins Gnýfara í samræmi við ósk bæjarráðs á 717. fundi ráðsins.
Samþykkt
Bæjarráð samþykkir framlagt minnisblað og felur bæjarstjóra að senda það til Hestamannafélagsins Gnýfara.

3.Erindi frá Hestamannafélaginu Gnýfara

Málsnúmer 2106026Vakta málsnúmer

Lagt er fram minnisblað bæjarstjóra og deildarstjóra tæknideildar dags. 6. ágúst 2021. Í minnisblaðinu er farið yfir fjögur aðskilin erindi sem bárust með tölvupósti í júní á þessu ári. Einnig er lögð fram yfirborðsmæling af svæði sem afmarkast af rótum Ósbrekkufjalls, Siglufjarðarvegar og ósi Ólafsfjarðarvatns.
Samþykkt
Bæjarráð samþykkir framlagt minnisblað og felur bæjarstjóra að senda það til Hestamannafélagsins Gnýfara.

4.Ósk um viðauka vegna komu varðskipsins Freyju

Málsnúmer 2111052Vakta málsnúmer

Lagt er fram minnisblað deildarstjóra tæknideildar dags. 22. nóvember 2021. Í minnisblaðinu óskar deildarstjóri eftir viðauka vegna framkvæmda tengdum því að varðskipinu Freyju hefur verið ákveðin heimahöfn á Siglufirði. Óskað er eftir kr. 3.750.000 sem færist á málaflokk 41180, lykil 4960 og kr. 5.750.000 sem eignfærist.
Samþykkt
Bæjaráð samþykkir viðauka nr. 28/2021 að fjárhæð kr. 9.500.000.- sem verður mætt með lækkun á handbæru fé og vísar honum til umfjöllunar og afgreiðslu bæjarstjórnar.

5.Losunarstaðir fyrir óvirkan úrgang í Fjallabyggð

Málsnúmer 2111051Vakta málsnúmer

Lagt er fram minnisblað deildarstjóra tæknideildar dags. 25. október 2021, í minnisblaðinu er farið yfir stöðu losunarstaða fyrir óvirkan úrgang og gróðurúrgang í Fjallabyggð.
Staðfest
Bæjarráð samþykkir að vísa minnisblaðinu til skipulags- og umhverfisnefndar og beinir því til nefndarinnar að sett verði upp leiðbeiningarskilti varðandi losun og umgengni við losunarstaði.

6.Regus skrifstofusetur í Fjallabyggð

Málsnúmer 2111046Vakta málsnúmer

Lagt er fram erindi Tómasar Hilmars Ragnarssonar f.h. Regus dags. 17. nóvember ásamt fylgiskjölum, í erindinu fer bréfritari þess annars á meðal á leit að fá að koma á fund bæjarráðs og kynna fyrir ráðinu hugmyndir er varða uppsetningu skrifstofuseturs í Fjallabyggð.
Samþykkt
Bæjarráð þakkar erindið og felur bæjarstjóra að bjóða bréfritara til fundar ráðsins við fyrsta hentugleika.

7.Erindum vísað til gerðar fjárhagsáætlunar 2022

Málsnúmer 2101003Vakta málsnúmer

Erindum vísað til gerðar fjárhagsáætlunar 2022.

Tekið til afgreiðslu óafgreidd erindi sem bæjarráð hafði vísað til umfjöllunar við gerð fjárhagsáætlunar 2022.

1. 2109085 - Úrkoma á Siglufirði 28. september 2021. Bæjarráð vísaði erindi vegna úrbóta á fráveitu eftir úrkomu á Siglufirði þann 28. september til gerðar fjárhagsáætlunar 2022 á fundi bæjarráðs þann 14. október sl.


Bæjarráð samþykkir að gert verði ráð fyrir endurnýjun á yfirfallslögn á dælubrunni við Torgið í framkvæmdaráætlun fyrir árið 2022.

2. 2008042 - Bryggja í Hornbrekkubót. Bæjarstjórn vísaði erindi vegna bryggju í Hornbrekkubót til gerðar fjárhagsáætlunar 2022 á fundi bæjarstjórnar þann 9. september sl.

Bæjarráð samþykkir að láta kostnaðarmeta verkefnið og óskar eftir umsögn deildarstjóra tæknideildar fyrir næsta fund bæjarráðs.

3. 1907030 - Undirskriftalistar vegna uppbyggingar hundasvæða. Bæjarráð vísaði erindi vegna uppbyggingar hundasvæða í Fjallabyggð til gerðar fjárhagsáætlunar 2022 á fundi bæjarráðs þann 17. nóvember 2020.

Bæjarráð sér sér ekki fært að verða við erindinu.

4. 2104016 - Bætt framsetning rekstrarupplýsinga. Bæjarráð vísaði erindi vegna bættrar rekstrarupplýsinga til gerðar fjárhagsáætlunar 2022 á fundi bæjarráðs þann 13. apríl sl.

Bæjarráð samþykkir að gera ráð fyrir kostnaði í fjárhagsáætlun 2022.

5. 2105080 - Lausar lóðir í Fjallabyggð. Bæjarstjórn vísaði erindi frá Helga Jóhannssyni vegna Bakkabyggðar til gerðar fjárhagsáætlunar 2022 á fundi bæjarstjórnar þann 18. júní sl. þar var lagt til við bæjarstjórn að við gerð fjárhagsáætlunar ársins 2022 yrði gert ráð fyrir að klára Bakkabyggð austur að Mararbyggð með malbikun, í stað þess að skilja helming eftir eins og nú er lagt upp með.

Bæjarráð samþykkir að gert verði ráð fyrir kostnaði til þess að ljúka við gatnagerð í Bakkabyggð í framkvæmdaráætlun 2022.

6. 2108017 - Samningur um talmeinaþjónustu. Bæjarráð vísaði erindi vegna samnings um talmeinaþjónustu 2021-2023 til gerðar fjárhagsáætlunar 2022 á fundi bæjarráðs þann 19. ágúst sl.

Bæjarráð samþykkir að gert verði ráð fyrir kostnaði vegna samnings um Talmeinaþjónustu í fjárhagsáætlun 2022.

7. 2109067 - Erindi frá Síldarminjasafni Íslands - beiðni um endurnýjun rekstrarsamnings. Bæjarráð vísaði erindi vegna endurnýjunar rekstrarsamnings við Síldarminjasafn Íslands ses til gerðar fjárhagsáætlunar á fundi bæjarráðs þann 7. október sl.

Bæjarráð samþykkir að óska eftir umsögn Markaðs- og menningarnefndar Fjallabyggðar samkvæmt reglum Fjallabyggðar um úthlutun styrkja til menningartengdra verkefna, reksturs safna og setra og til hátíðarhalda.


8. 2110044 - Kvennaathvarfið - umsókn um rekstrarstyrk 2022. Bæjarráð vísaði erindi frá Brynhildi Jónsdóttur fh. Kvennaathvarfsins til gerðar fjárhagsáætlunar 2022 á fundi bæjarráðs þann 22. október sl. þar sem óskað var eftir rekstrarstyrk fyrir árið 2022 að fjárhæð kr. 100.000.-

Bæjarráð samþykkir að veita Kvennaathvarfinu styrk að upphæð kr. 100.000.-.

9. 2110060 - Beiðni um framkvæmdastyrk. Bæjarráð vísaði erindi frá Rósu Jónsdóttur fh. Golfklúbbs Fjallabyggðar til gerðar fjárhagsáætlunar á fundi bæjarráðs þann 21. október sl. þar sem óskað var eftir framkvæmdastyrk að fjárhæð kr. 30.000.000.-.

Bæjarráð sér sér ekki fært að verða við erindinu.

10. 2110066 - Fjárveiting til hafnarframkvæmda. Hafnarstjórn vísaði erindi vegna yfirlits Vegagerðarinnar um framkvæmdir sem framundan eru á árunum 2022-2024 til gerðar fjárhagsáætlunar 2022 á fundi hafnarstjórnar þann 4. nóvember sl.

Bæjarráð samþykkir að gert verði ráð fyrir framkvæmdum í framkvæmdaráætlun 2022.

11. 2110098 - Styrkumsókn - Blöðrubraut. Bæjarráð vísaði erindi frá Róberti Guðfinnssyni f.h. Siglo golf and ski club til gerðar fjárhagsáætlunar 2022 á fundi bæjarráðs þann 11. nóvember sl. þar sem óskað var eftir styrk að fjárhæð kr. 30.000.000 til uppbyggingar á blöðrubraut sem félagið hyggst byggja í Skarðdalsskógrækt.

Bæjarráð sér sér ekki fært að verða við erindinu.

12. 2110150 - Pálshús - framkvæmdastyrkur 2022. Bæjarráð vísaði erindi frá Þorsteini Ásgeirssyni f.h. Fjallasala ses til gerðar fjárhagsáætlunar 2022 á fundi bæjarráðs þann 4. nóvember sl. þar sem óskað var eftir styrk að fjárhæð kr. 3.000.000.- til uppbyggingar Undraveraldar í Pálshúsi.

Bæjarráð samþykkir að veita Pálshúsi framkvæmdarstyrk á árinu 2022 að upphæð kr. 500.000.- að því uppfylltu að Pálshús nái að fjármagna verkefnið.

13. 2111002 - Samstarfssamningur Fjallabyggðar og Hestamannafélagsins Gnýfara 2022. Bæjarráð vísaði erindi frá Þorvaldi Hreinssyni f.h. Hestamannafélagsins Gnýfara til gerðar fjárhagsáætlunar 2022 á fundi bæjarráðs þann 4. nóvember sl. þar sem óskað var eftir endurnýjun á gildandi samstarfssamningi og hækkun styrks úr 640 þús.kr. í 850 þús.kr.

Bæjarráð samþykkir að endurnýja samstarfssamning fyrir árið 2022 og að styrkfjárhæð verði óbreytt kr. 640.000.-.

14. 2111024 - Styrkumsókn - Stígamót. Bæjarráð vísaði erindi frá Steinunni Gyðu- og Guðjónsdóttur talskonu Stígamóta til gerðar fjárhagsáætlunar 2022 á fundi bæjarráðs þann 11. nóvember sl. þar sem óskað var eftir óskilgreindu framlagi sveitarfélagsins til starfsemi samtakanna á komandi ári.

Bæjarráð sér sér ekki fært að verða við erindinu.

15. 2111030 - Hleðsla Rafbíla. Bæjarráði vísaði erindi frá Sverri Sveinssyni til gerðar fjárhagsáætlunar 2022 á fundi bæjarráðs þann 18. nóvember sl. þar sem óskað var eftir að hægt yrði að hlaða rafbíla við Skálarhlíð.

Bæjarráð samþykkir að gert verði ráð fyrir hæghleðslustöð í framkvæmdaráætlun 2022 við Skálarhlíð, enda hefur fengist styrkur við framkvæmdina á móti framlagi Fjallabyggðar.

16. 2111025 - Framkvæmdastyrkur - umsókn. Bæjarráð vísaði erindi frá Jóhanni Má Sigurbjörnssyni f.h. Golfklúbbs Siglufjarðar til gerðar fjárhagsáætlunar 2022 á fundi bæjarráðs þann 18. nóvember sl. þar sem óskað var eftir styrk að fjárhæð kr. 30.000.000. til uppbyggingar inniaðstöðu fyrir golfspilara.

Bæjarráð sér sér ekki fært að verða við erindinu.

17. 2110145 - Umsókn um styrk. Bæjarráð vísaði erindi frá Skíðafélagi Ólafsfjarðar til gerðar fjárhagsáætlunar 2022 á fundi bæjarráðs þann 18. nóvember sl. þar sem óskað var eftir styrk varðandi afnot af íþróttamannvirki í Ólafsfirði og vegna afnota af Tjarnarborg vegna Fjarðargöngunnar 2022.

Bæjarráð samþykkir að gert verði ráð fyrir afnotum íþróttamiðstöðvar og Tjarnarborgar vegna Fjarðargöngu í fjárhagsáætlun 2022.

18. 2110122 - Umsókn um styrk. Bæjarráð vísaði erindi frá Gesti Þór Guðmundssyni vegna North Ultra fjallahlaupsins 2022 til gerðar fjárhagsáætlunar 2022 á fundi bæjarráðs þann 18. nóvember sl. þar sem óskað var eftir styrk að fjárhæð kr. 500.000.-, afnotum og aðstoð frá Fjallabyggð t.d. vegna lokun gatna í Ólafsfirði og á Siglufirði sem og tónleikar þegar hlauparar koma í mark.

Bæjarráð samþykkir að veita styrk fyrir afnotum og aðstoð en sér sér ekki fært að verða með tónleika eða peningastyrk.

19. 2110059 - Styrkumsóknir frá björgunarsveitum. Bæjarráð vísaði erindum frá Magnúsi Magnússyni, fh. unglingadeildarinnar Smástráka, Tómasi Atla Einarssyni, fh. unglingadeildarinnar Djarfs, Tómasi Atla Einarssyni fh. Björgunarsveitarinnar Tinds og Ingvari Erlingssyni, fh. Björgunarsveitarinnar Stráka, til gerðar fjárhagsáætlunar 2022 á fundi bæjarráðs þann 18. nóvember sl. vegna umsókna um styrki fyrir árið 2022.

Bæjarráð samþykkir að veita eftirfarandi styrki:
Unglingadeildin Smástrákar kr. 600.000.
Unglingadeildin Djarfur kr. 600.000.
Björgunarsveitin Tindur kr. 2.000.000.
Björgunarsveitin Strákar 2.000.000.

20. 2110062 - Umsókn um styrk. Bæjarráð vísaði erindi frá Blakfélagi Fjallabyggðar til gerðar fjárhagsáætlunar 2022 vegna óskar um afnot af íþróttamannvirkjum sveitarfélagsins fyrir Paramót BF-Sigló Hótel, Benecta mót BF, Íslandsmótsleika og -túrneringar og Héraðsmót yngri flokka.

Bæjarráð samþykkir að gert verði ráð fyrir afnotum íþróttamiðstöðva vegna eftirtalda móta í fjárhagsáætlun 2022.

8.Áfangastaðastofa

Málsnúmer 2104082Vakta málsnúmer

Lögð eru fram drög að samningi sveitarfélaga við Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra (SSNE) vegna áfangastaðastofu. Framlagður samningur leysir af hólmi samning sem Markaðsstofa Norðurlands hefur gert við sveitarfélögin undanfarin ár vegna þjónustu sinnar.
Samþykkt
Bæjarráð samþykkir framlögð samningsdrög og felur bæjarstjóra að undirrita samninginn.

9.Björgunarsveitin Strákar

Málsnúmer 2111037Vakta málsnúmer

Fram er lagt að nýju erindi stjórnar Björgunarsveitarinnar Stráka dags. 13. nóvember 2021. Á fundi bæjarráðs mættu Magnús Magnússon, Ingvar Erlingsson og Gísli Ingimundarson, fulltrúar stjórnar og fóru yfir starfsemi sveitarinnar, hugmynd að gerð langtímasamnings um styrkveitingar, skilgreiningar samstarfsverkefna sveitarinnar og Fjallabyggðar og kynntu stórt verkefni sveitarinnar er varðar kaup á fullkomnum leitardróna.
Samþykkt
Bæjarráð þakkar góða yfirferð erindis og leggur til að farið verði í vinnu við gerð langtímasamnings um veitta þjónustu björgunarsveitarinnar og felur bæjarstjóra að ræða við björgunarsveitina.

10.Fundargerðir Samtaka sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra (SSNE) - 2021

Málsnúmer 2101049Vakta málsnúmer

Lögð er fram til kynningar fundargerð 31. fundar stjórnarfundar Samtaka sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra
Lagt fram

11.Fundargerðir Hafnasambands Íslands - 2021

Málsnúmer 2101074Vakta málsnúmer

Lögð er fram til kynningar fundargerð 439. fundar stjórnar Hafnasambands Íslands

Lagt fram

12.Fundargerðir nefnda og stjórna Fjallabyggðar - 2021

Málsnúmer 2101002Vakta málsnúmer

Lagðar eru fram til kynningar fundargerð 30. fundar stjórnar Hornbrekku, 104. fundar Fræðslu- og frístundanefndar Fjallabyggðar, 135. fundar Félagsmálanefndar Fjallabyggðar og 81. fundar Markaðs- og menningarnefndar Fjallabyggðar.

Hvað varðar lið nr.1 í fundargerð 30. fundar stjórnar Hornbrekku þá samþykkir bæjarráð kr. 500.000 hækkun á lið 4280 námskeið vegna innleiðingar á Eden hugmyndafræðinnar í fjárhagsáætlun 2022.
Samþykkt

Fundi slitið - kl. 09:30.