Úthlutun byggðakvóta á fiskveiðiárinu 2023-2024

Matvælaráðuneytið hefur tilkynnt Fjallabyggð um úthlutun á 167 tonnum af byggðakvóta, af alls 4829 tonna byggðakvóta yfirstandandi fiskveiðiárs 2023-2024. Fjallabyggð fær samtals 3,4% af heildarúthlutun til allra byggðarlaga. Kvótinn skiptist á milli sveitarfélagsins þannig að til Ólafsfjarðar fara 36 tonn,  en til Siglufjarðar fara 131 tonn.. Heildartonnafjöldinn þ.e. 167 tonn sem úthlutað er til byggðarlagsins er 18 tonnum lægri en á síðasta fiskveiði ári. 

Bæjarfélaginu er gefinn frestur til 29. desember nk. að senda ráðuneytinu tillögur um sérreglur.

Á 814. fundi bæjarráðs var bæjarstjóra falið að vinna málið áfram og leggja fyrir bæjarstjórn drög að reglum um byggðakvóta fyrir Fjallabyggð þar sem haft verði að leiðarljósi hámarksnýting byggðakvótans. Tillögur bæjarstjóra að sérreglum Fjallabyggðar um byggðakvóta hafa verið lagðar fram og samþykktar af Bæjarstjórn með 7 atkvæðum.

Lagt er til að sérreglur í reglugerð hvað varðar Fjallabyggð verði með þeim hætti að heimilt verði að landa afla innan sveitarfélags óháð því í hvoru byggðarlagi bátur fær úthlutun, einnig er lagt til að hámark úthlutunar til hvers skips verði ekki meiri en 80 tonn.

Ákvæði reglugerðar nr. 852/2023 gilda um úthlutun byggðakvóta Ólafsfjarðar og Siglufjarðar með eftirfarandi breytingum:

  • a) Ákvæði 1. málsl. 1. mgr., c liðar 1. greinar breytist og verður: Eru í eigu eða leigu einstaklinga eða lögaðila með heimilisfang í viðkomandi sveitarfélagi 1. júlí 2023.
  • b) Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Skipting þess aflamarks, sem nú kemur í hlut byggðarlags, auk þess aflamarks byggðarlagsins sem kann að vera eftir af úthlutun fyrra fiskveiðiárs, skal að öðru leyti fara til einstakra fiskiskipa sem uppfylla skilyrði 1. gr., sbr. og reglur um sérstök skilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta í einstökum sveitarfélögum sem ráðuneytið staðfestir samkvæmt 2.-3. gr., eftir því sem við á, og skal skipt hlutfallslega af því aflamarki sem fallið hefur til viðkomandi byggðarlags, miðað við allan landaðan botnfiskafla í tegundum sem hafa þorskígildisstuðla, í þorskígildum talið innan viðkomandi byggðarlags á fiskveiðiárinu, þó að hámarki 80 þorskígildistonn á fiskiskip.
  • c) Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: "Fiskiskipum er skylt að landa þeim afla sem telja á til byggðarkvóta innan sveitarfélagsins. "

Bæjarstjórn leggur sérstaka áherslu á breytingatillögur c-liðar og að Matvælaráðuneytið taki tillit til aðstæðna í Fjallabyggð og heimili að undanþágu frá algerri vinnsluskyldu og tryggi þannig hámarksnýtingu byggðakvótans fyrir samfélagið í Fjallabyggð.