Snjóhengjur og grýlukerti ⚠️

Slökkvilið Fjallabyggðar vill vekja athygli húseigenda og forráðamanna fyrirtækja á að huga að snjóhengjum og grýlukertum á húseignum sínum. Mikil hætta getur skapast falli grýlukerti eða snjóhengjur niður. Eigendur og umráðamenn fasteigna eru hvattir til þess að gera viðeigandi ráðstafanir til að koma í veg fyrir óhöpp eða slys.